Lykilhæfni
Grunnþættir menntunar og áhersluþættir í grunnskólalögum móta hugtakið lykilhæfni.
Lykilhæfnin á að fléttast inn í öll námssvið og reynir á hæfni nemandans til að nýta sér þekkingu sína til aukins þroska. Lykilhæfnin skiptist í fimm undirþætti:
- tjáningu og miðlun,
- skapandi og gagnrýninni hugsun,
- sjálfstæði og samvinnu,
- nýtingu miðla upplýsinga
- og ábyrgð og mat á eigin námi.
Grunnþættir menntunar og lykilhæfnin eiga að stuðla að fjölbreyttum kennsluaðferðum og námsmatsleiðum.
Í Setrinu eru unnið eftir ákveðnu vinnuferli sem þjálfar um leið lykilhæfni nemenda.
Í lykilhæfnitímum velur nemandinn verkefni á valblaði.
Nemandinn sækir viðeigandi tímaseðli með lýsingu á verkefninu og nær í viðeigandi gögn sem aðgengileg eru í plastkassa.
Nemandinn fylgir leiðbeiningum á tímaseðli og skráir niður þær upplýsingar sem beðið er um.
Í lok tímans gerir nemandinn stutt sjálfsmat á eigin frammistöðu. Nemandinn fær reglulegt leiðsagnarmat frá kennara og þroskaþjálfa.