Námsmat
Heildrænt námsmat byggir á markvissri og fjölbreyttir upplýsingaöflun og skipulegri skráningu.
1. önn: Upphafsstaður: Upplýsingum safnað um grunnþekkingu, vinnubrögð og aðlögun í skólastarfinu með skráningu á gátlista.
Foreldradagur: Námsmarkmiðabók, verkmappa (rafræn).
2. önn: Áning: Staldrað við og horft yfir farin veg. Upplýsingum safnað um stöðu nemandans varðandi almenn og námstengd markmið með áherslu á sjálfsmat og mat á verkefnum í verkmöppu.
Foreldradagur: Námsmarkmiðabók, ljósmyndasjálfsmat, verkmappa (rafræn)
3. önn: Marklína: Upplýsingum safnað um það hversu langt nemandinn fór í ferðalagi markmiðanna með margvíslegum verkefnum, könnunum og prófgerðum.Áhersla lögð á að nemendur geti nýtt sér tölvutæknina í könnunum/prófum.
Foreldradagur: Námsmarkmiðabók, rafræn verkmappa.
Frammistöðumat: |
Áhersla á Lífsleikni/skólafærni: Hegðun, virkni, vinnubrögð. Staða í íslensku- og stærðfræði metin með munn- og skriflegum verkefnum í tölvu og á blaði. |
Verkmappa: |
Velja bestu verkefnin í rafræna möppu. |
Vettvangsathugun: |
Dagbækur, áætlunarbækur, gátlistar, matslistar. |
Sjálfsmat: |
Mat á áætlunarvinnu (virkni, vinnubrögð). Mat á samskiptum (hegðun). |