Gjöf

Í vikunni barst Setrinu höfðingleg gjöf frá fyrirtæki á Selfossi sem við erum afar þakklát fyrir. Um er að ræða Ipad sem mun nýtast mjög vel í skólastarfinu sem námstæki og til tjáskiptaþjálfunar. Nokkrir nemendur eru farnir að koma með eigin Ipad og spjaldtölvur í skólann. Nú þegar Setrið á sinn Ipad gefur það okkur möguleika á að þróa betur hvernig hægt er að nýta forritin og snertitæknina til að efla sjálfstraust og námsgleði nemenda.